klukkan er 09:37


Fréttir

Nýr framkvæmdastjóri hjá Strætó bs.

23.4.2007

Reynir er með fjölbreytta og víðtæka menntun og starfsreynslu. Undanfarin 3 ár hefur hann starfað sjálfstætt sem stjórnunar- og viðskiptaráðgjafi. Á árunum 2000 – 2004 starfaði Reynir sem ráðgjafi hjá Deloitte viðskiptaráðgjöf (sem sameinaðist IMG viðskiptaráðgjöf og heitir nú Capacent).  Þar á undan starfaði Reynir um fjögurra ára skeið við viðskiptaþróun og framkvæmdastjórn hjá Yellowtel A/S og dótturfélagi þess, Infolinje, með aðsetur í Varsjá í Póllandi.  Frá 1991 til 1996 gegndi Reynir stöðu sölustjóra hjá EJS hf.

Reynir er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur jafnframt stundað meistaranám í stjórnun og stefnumótun frá saman skóla.  Hann er kvæntur Ástu Dís Óladóttur, doktorsnema og kennara við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn.  Þau eiga fjögur börn.



Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica