klukkan er 09:17


Fréttir

Ásgeir Eiríksson lætur af störfum sem framkvæmdastjóri

18.1.2007

Ásgeir Eiríksson hefur ákveðið í samráði við stjórn byggðasamlagsins að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Strætó bs.

Þegar Ásgeir tók við sem framkvæmdastjóri Strætó, í kjölfar stofnunar fyrirtækisins fyrir fimm og hálfu ári var hans fyrsta verk var að sameina í eitt, þau fyrirtæki sem sinntu almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Að því loknu tók við heildarendurskoðun leiðakerfisins fyrir allt höfuðborgarsvæðið, sem lauk í mars 2006. Nýtt og skilvirkt leiðakerfi hefur orðið til þess að farþegum Strætó hefur nú fjölgað í fyrsta skipti frá stofnun fyrirtækisins.

Stjórn Strætó þakkar Ásgeiri vel unnin störf hans í þágu byggðasamlagsins.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica