Fréttir
Ný akstursleið strætó um Kleppsveg
Færslu Sæbrautar er nú lokið og akstursleiðir komnar í endanlegt horf. Samkvæmt hinu nýja skipulagi mun Strætó, leið 12, aka eftir Kleppsvegi til vesturs frá Langholtsvegi að Laugarnesvegi frá og með 23. desember. Til austurs frá Laugarnesvegi verður áfram ekið um Sæbraut eins og verið hefur.
Með þessari breytingu verður ekið um Laugarnesveg eins og var áður en framkvæmdir hófust, en akstur um Kirkjusand leggst af.
Akstur á leið 16 verður óbreyttur frá því sem verið hefur eftir að gatnamót Sæbrautar og Sundagarða voru lagfærð, og tengingu um gatnamót Sæbrautar og Klettagarða var komið á.
