Olíufélögin dæmd til að greiða Strætó bætur
Borgin og Strætó stefndu olíufélögunum vegna samráðs þeirra og krafðist fyrrnefndi aðilinn 138 milljóna króna í skaðabætur en Strætó 19 milljóna króna, samtals um 157 milljónir króna. Varakrafa borgarinnar var rúmar 72 milljónir og Strætós um 5,8 milljónir króna og varð héraðsdómur við þeim. Þá voru olíufélögin dæmd til að greiða um 1,2 milljónir króna í málskostnaði í máli borgarinnar og um 100 þúsund krónur í máli Strætós.
Reykjavíkurborg og Strætó ákváðu að hefja málaferlin snemma á árinu eftir árangurslausar viðræður borgarinnar og olíufélaganna um bætur. Við aðalmeðferð málsins í síðasta mánuði viðurkenndu lögmenn olíufélaganna samráðið. Þeir höfnuðu hins vegar bótakröfunum og báru því við að ekki hefðu verið færðar sönnur á skaða vegna samráðsins, hvað þá að hægt væri að tilgreina upphæð í því samhengi.
