Ársfundur Strætó bs samþykkir ályktun til ríkisvaldsins
Ársfundur Strætó bs og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu skora á ríkisvaldið að leggja sitt að mörkum til að bæta rekstrarskilyrði almenningssamgangna, og minnka þær álögur sem lagðar eru á starfsemina. Einkum er lögð áhersla á eftirfarandi:
· Kaupendur almenningsvagna fái 2/3 hluta virðisaukaskatts vegna kaupa á nýjum vögnum endurgreiddan á sama hátt og kaupendur hópferðabifreiða fá. Leiðréttingin verði afturvirk frá því ákvæðið tók gildi 2001.
· Kostnaðarauki sem varð vegna brottfalls þungaskatts og upptöku olíugjalds verði leiðréttur.
· Ráðist verði í úrbætur á þjóðvegum á höfuðborgarsvæðinu sem strætisvagnar aka um, með það að markmiði að efla og auka samræmdan forgang í umferð.
· Ríkisvaldið styðji almenningssamgöngur sem nemur álögðum virðisaukaskatti á starfsemi málaflokksins.
Greinargerð:
Almenningssamgöngur eru mikilvægur hlekkur í samfélagsþjónustu höfuðborgarsvæðisins. Með öflugum almenningssamgöngum og aukinni notkun þeirra eykst þjóðhagslegt mikilvægi þeirra. Vel nýttar almenningssamöngur leiða til minna slits á gatnakerfinu og til minna umferðaálags. Þær leiða einnig til minni útblásturs skaðlegra gróðurhúsalofttegunda. Þessir þættir eru því í samræmi við hagsmuni og stefnu ríkisvaldsins.
Starfræksla almenningssamgangna er ekki lögbundið hlutverk sveitarfélaganna. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu axla eigi að síður samfélagslega ábyrgð sína með því að starfækja þessa þjónustu, sem er sjálfsögð og nauðsynleg í borgarsamfélagi á borð við höfuðborgarsvæðið. Til þess að unnt sé að starfækja öflugar almenningssamgöngur er mikilvægt að ríkisvaldið taki einnig þátt í hinni samfélagslegu ábyrgð og skapi málaflokknum þau rekstrarskilyrði, að þær geti verið raunhæfur valkostur í vali á samgöngumáta fyrir íbúa og gesti höfuðborgarsvæðisins.
