Enn fjölgar farþegum Strætó
Alls fjölgaði farþegum Strætó í nóvember um 49,010 og voru þeir 739.658 en 690.648 á sama tíma í fyrra. Þessar tölur eru óumdeilanleg vísbending þess að sífellt fleiri nýta sér þjónustu Strætó.
Það sem af er árinu hefur farþegafjöldi aukist um 247.802 eða 3.9% og er því ljóst að þær breytingar sem gerðar hafa verið á leiðarkerfinu eru til mikilla hagsbóta fyrir viðskiptavini Strætó.
Almennt fargjald hjá Strætó kostar 250 krónur en handhafi Græna kortsins, sem gildir í mánuð, greiðir 125 krónur fyrir hverja ferð, miðað við að farnar séu tvær ferðir á dag, fimm daga vikunnar. Þeir sem nota Rauða kortið greiða 96 krónur fyrir hverja ferð, miðað við sömu forsendur og handhafar Skólakortsins greiða 65 krónur fyrir ferðina.
