klukkan er 08:23


Fréttir

Stjórnsýsluúttekt á Strætó bs.

19.10.2006

Margt athyglisvert kemur fram í úttekt Deloitte sem núverandi stjórn og stjórnendur geta nýtt sér við rekstur byggðasamlagsins í framtíðinni.

Í megin niðurstöðum skýrslunnar eru gerðar athugasemdir við regluna um skiptingu kostnaðar milli sveitafélaganna en hún er sögð bjóða upp á tortryggni og ágreining milli eigenda byggðasamlagsins. Núverandi stjórn Strætó hefur óskað eftir því að vinnu við nýja kostnaðarskiptingu verði flýtt og munu tillögur til stjórnar verða lagðar fram innan fárra daga.

Deloitte segir í úttekt sinni að óljóst sé hvert eigendur Strætó vilji stefna enda sé ekki til nein formlega samþykkt stefnumörkun fyrir Strætó. Ennfremur kemur fram að bein pólitísk afskipti af daglegri starfsemi Strætó séu töluverð og skaðleg fyrirtækinu. Þessi beinu pólitísku afskipti stuðla, að mati Deloitte, að ómarkvissri stjórnun og grafa undan trúverðugleika stjórnar og stjórnenda og umboði þeirra til að taka sjálfstæðar og faglegar ákvarðanir. Dæmi um pólitísk afskipti af þessu tagi eru skipti milli talstöðvakerfa, úr VHF yfir í Tetra. Að baki þeirri ákvörðun liggja engar stjórnunarlegar forsendur og breytingin tífaldaði rekstrarkostnað talstöðvarkerfisins. Einnig má nefna þá ákvörðun að Strætó yrði gert að koma upp rafrænu greiðslukerfi. Það hefur haft mikinn kostnað í för með sér. Í skýrslunni kom fram að Reykjavíkurborg skipaði þriggja manna stýrihóp um verkefnið og þar af átti Strætó einungis einn fulltrúa.

Veigamiklar athugasemdir eru gerðar við innleiðingu nýja leiðakerfisins sumarið 2005. Í úttektinni er bent á að markmið um fjölgun farþega í kjölfar leiðakerfisbreytingarinnar hafi ekki náðst. Farþegum Strætó fækkaði eftir að nýja leiðakerfið var tekið upp. Í skýrslunni er jafnframt bent á að kaupmáttaraukning í samfélaginu og aukin velmegun, sem meðal annars endurspeglaðist í mikilli fjölgun einkabíla, hafi ekki verið fyrirsjáanleg. Einnig er bent á að leiðakerfið taki mið af þróun höfuðborgarsvæðisins og því hafi verið of mikil bjartsýni að ætlast til þess að breytingin leiddi strax af sér fjölgun farþega og auknar tekjur.

Stjórn Strætó bendir hins vegar á að farþegum Strætó hafi fjölgað töluvert á árinu, eða um 3,5% fyrstu níu mánuði ársins miðað við sama tíma á síðasta ári. Farþegafjölgunin nam 6,8% í september en faþegum hefur alls fjölgað í fimm af níu mánuðum ársins.

Í úttekt Deloitte var tekið fram að ekki ríkti fullkomin samstaða og trúnaður meðal æðstu stjórnenda og að það hafi sérstaklega endurspeglast í innleiðingu og hönnun nýja leiðakerfisins. Pólitísk afskipti af starfseminni, skortur á stefnumörkun af hálfu þáverandi stjórnar og ófullkomnar stjórnendaupplýsingar eru nefndar sem hugsanlegar ástæður.

Stjórn Strætó þakkar Deloitte vinnuna við gerð skýrslunnar og fagnar því að geta notað niðurstöður hennar í stefnumótunarvinnu sinni sem þegar er hafin.

Hér er hægt að nálgast skýrsluna í heild á pdf-formi


Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica