Enn fjölgar farþegum Strætó
Fjölgun um 6,8% í september og 3,5% frá áramótum.
Þetta er þriðji mánuðurinn í röð þar sem farþegum Strætó fjölgar og fimmti mánuður ársins þar sem farþegar eru fleiri en í sama mánuði síðasta árs. Á öðrum þriðjungi ársins var farþegafjölgunin hjá Strætó alls 9,2% sem var töluverð breyting frá 1,9% fækkun farþega á fyrsta þriðjungi ársins.
„Þessar farþegafjölgun er sérstaklega ánægjuleg eftir samdrátt síðustu ára,” segir Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó bs. „Það hefur verið viðvarandi farþegaaukning síðustu mánuðina. Það bendir ótvírætt til þess að breytingarnar sem gerðar hafa verið á leiðakerfinu mæti þörfum viðskiptavina okkar og að almenningur sé að átta sig á því að strætó er raunhæfur valkostur á höfuðborgarsvæðinu.”
Almennt fargjald hjá Strætó kostar 250 krónur en handhafi Græna kortsins, sem gildir í mánuð, greiðir 125 krónur fyrir hverja ferð, miðað við að farnar séu tvær ferðir á dag, fimm daga vikunnar. Þeir sem nota Rauða kortið greiða 96 krónur fyrir hverja ferð, miðað við sömu forsendur og handhafar Skólakortsins greiða 65 krónur fyrir ferðina.
