Farþegum strætó fjölgaði um 20% í júlí og ágúst
„Þessar niðurstöður eru í senn ánægjulegar og hvetjandi fyrir Strætó. Við álítum að þessa fjölgun megi rekja til þess að almenningur hefur nú betri þekkingu á nýja leiðakerfinu eftir endurbætur á því fyrr á árinu,” segir Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó bs.
„Allar breytingar þurfa sinn aðlögunartíma. Þessar niðurstöður staðfesta það. Þær eru starfsmönnum Strætó hvatning til að bæta þjónustuna enn frekar. Vonandi eru þær einnig vísbending þess að almenningur er að átta sig á því að strætó er í senn hagkvæmur, raunhæfur og þægilegur ferðamáti,” segir Ásgeir ennfremur.
Almennt fargjald hjá Strætó kostar 250 krónur en handhafi Græna kortsins, sem gildir í mánuð, greiðir 125 krónur fyrir hverja ferð, miðað við að farnar séu tvær ferðir á dag, fimm daga vikunnar. Þeir sem nota Rauða kortið greiða 96 krónur fyrir hverja ferð, miðað við sömu forsendur og handhafar Skólakortsins greiða 65 krónur fyrir ferðina.
