klukkan er 08:29


Fréttir

Norðurlandamót vagnstjóra 2006

30.8.2006

Höfuðborgirnar fimm, skiptast á að halda keppnina og skipa sex vagnstjórar hvert lið, sem ekur keppnisbraut sem samanstendur af tíu þrautum sem þarf að leysa á sem skemmstum aksturstíma, auk þess sem tímarefsingar fást fyrir villur sem hver keppandi gerir í brautinni. Samtals tími hvers vagnstjóra, telur til liðsúrslita, auk þess sem tími hvers og eins telur til einstaklingsúrslita. Það eru semsagt fimm lið að keppa um norðurlandatitil og 30 vagnstjórar innbyrðis og keppendur eiga ekki að sjá keppnisbrautina fyrr en á keppnisdag.Rögnvaldur Jónatansson í brautinni.

Reykvískir vagnstjórar tóku fyrst þátt 1983 og unnu “júmbó” verðlaunin fyrstu árin, enda ekki hoknir af sömu reynslu og keppendur hinna höfuðborganna.

Síðan 1990, er keppnin var fyrst haldin í Reykjavík, hefur hinsvegar snúist til betri vegar og árangur reykvískra vagnstjóra mun betri. Síðan þá hefur lið Ak.St.SVR, unnið til 7 gullverðlauna, 8 silfurverðlauna og eins bronsverðlauna, auk þess sem fjórum sinnum hefur norðurlandatitill einstaklinga unnist.

Markús Sigurðsson í brautinni.

Reykvískir vagnstjórar Strætó bs.urðu að sætta sig við silfursætið að þessu sinni, en liðið hefur unnið til gullverðlauna síðustu fjögur árin. Finnar komu afar ákveðnir til leiks og sigruðu nokkuð örugglega, þar sem fimm af þeirra sex manna liði, höfnuðu í sex efstu sætum einstaklinga, einum Svía tókst að troða sér í þriðja sætið og rugla aðeins röðinni hjá heimaliðinu. Sjötti liðsmaður Finna, hafnaði í 28 sæti og greinilegt að hann var ekki rekinn áfram af sama innsæi og reynslu og aðrir liðsmenn finnska liðsins. Svíar unnu til bronsverðlauna, norðmenn urðu í fjórða sæti og danir ráku lestina í fimmta sætinu.

Bestum árangri íslendinga, náði Rögnvaldur Jónatansson, en hann hafnaði í 7.sæti einstaklinga, Þórarinn Söebech í 11.sæti, Markús Sigurðsson varð í 12.sæti. Sigurjón Guðnason, í sinni fyrstu keppni, náði 16.sætinu og gjörsigraði þar með finnska nýliðann, sem eins og áður sagði, endaði í 28.sæti. Steindór Steinþórsson varð í 18. sætinu og Kjartan Pálmarsson í 20.sæti.

Keppnislið Ak.St.SVR

Keppnislið Ak.St.SVR: Efri röð frá vinstri: Rögnvaldur Jónatansson, Markús Sigurðsson, Steindór Steinþórsson, Þórarinn Söebech, Kjartan Pálmarsson og Sigurjón Guðnason.
Neðri röð frá vinstri: Jóhann G Gunnarsson, Kristján Kjartansson og Hörður Tómasson.



Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica