klukkan er 09:23


Fréttir

Með Strætó á Menningarnótt

16.8.2006

Vegna Reykjavíkurmaraþons og lokunar gatna í miðborginni er nauðsynlegt að hafa tvenns konar fyrirkomulag á akstri vagna eftir tímum dagsins.

Frá kl. 07:00 – 15:00

Biðstöð fyrir vagna að og frá miðborginni verður í Tjarnargötunni við Ráðhúsið

Leiðir sem aka frá Hlemmi (Leiðir S1-S3-S4-S6-og Leiðir 11-12-13-14-) aka um Snorrabraut gömlu Hringbraut – Hringbraut – Suðurgötu – Skothúsveg - Tjarnargötu – (Ráðhús-biðstöð) Vonarstræti – Suðurgata – Hringbraut ( austur eða vestur í bæ).

Sömu leiðir á leið að Hlemmi aka frá Hringbraut um Suðurgötu - Skothúsveg – Tjarnargötu – Vonastræti – Suðurgötu – Hringbraut - gömlu Hringbraut – Snorrabraut – að Hlemmi.

Eftir kl. 15:00 – 24:00

Biðstöð fyrir vagna að og frá miðborginni verður í Vonarstræti og á Skothúsvegi

Leiðir sem aka frá Hlemmi (Leiðir S1-S3-S4-S6-og Leiðir 11-12-13-14-) aka um Snorrabraut  - gömlu Hringbraut – Sóleyjargötu – Fríkirkjuveg - Vonarstræti – Suðurgata – Hringbraut ( austur eða vestur í bæ).

Sömu leiðir á leið að Hlemmi aka frá Hringbraut um Suðurgötu - Skothúsveg -Sóleyjargötu – gömlu Hringbraut – Snorrabraut  að Hlemmi


Á Menningarnótt munu strætisvagnar aka samkvæmt tímatöflu laugardaga. Búast má við að tímatöflur vagna fari að hluta úr skorðum vegna umferðar og mun aukavagnar verða í förum til að létta álagið og tryggja eðlilegar brottfarir frá endastöðvum.  



Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica