klukkan er 08:15


Fréttir

Skólakort fyrir veturinn

17.8.2006

Skólakortið er svokallað S-kort, sem er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Strætó bs. um rafrænt miðakerfi. Fyrst um sinn er gert ráð fyrir að kortið nýtist til greiðslu fargjalds í strætó.

Með útgáfu skólakortsins 2006 – 2007 er stigið fyrsta skrefið í að taka nýja rafræna kerfið í notkun hjá Strætó bs. Allir þeir sem kaupa skólakortið fá í hendur “S-kortið”, en það er plastkort sem hefur innbyggða örflögu þar sem gildistími kortsins er skráður. 

Gildistími: Skólakortið gildir til 1. júní 2007. 

Verð:  Kortið kostar kr. 27.900,-

Hvernig er kortið notað?  Þegar farþegi stígur um borð í strætisvagninn er S-kortið borið upp að rafræna lesaranum, sem annars vegar gefur frá sér hljóðmerki (lágt píp) og hins vegar ljósmerki (grænt ljós).  Nauðsynlegt er að bera korið upp að lesararnum í hvert skipti sem stigið er um borð í vagninum.  Ef af einhverjum ástæðum tekst ekki að skrá færsluna, þ.e. hvorki kemur ljós- né hljóðmerki er mikilvægt að framvísa kortinu hjá vagnstjóra.  Kortið hefur innbyggt loftnet, og því er nóg að bera það upp að lesaranum.

Hvað ef kortið glatast?  Þegar kortin eru seld eru þá skráð á nafn og kennitölu kaupanda, og þannig tengd við númer kortsins.  Ef kortið glatast er unnt að tilkynna það í þjónustusíma S-kortsins, og verður kortið þá sett á válista og þar með ógilt.  Eigandi kortsins getur fengið nýtt kort á skrifstofu Strætó bs. í Mjódd gegn greiðslu kortagjalds, sem er kr. 400,- 

Hvar er hægt að kaupa skólakortið?  Skólakortið er selt á öllum farmiðasölustöðum Strætó bs.  Þeir eru:  Söluturninn Lækjartorgi, Skiptistöðin Hlemmi, Skiptistöðin Mjódd, Kringlan - þjónustuborð, Söluturninn Rebbi, Hamraborg, Kópavogi; Smáralind – þjónustuborð, Íþróttamiðstöðin Ásgarður í Garðabæ; Fjörður, BSH, Fjarðargötu, Hafnarfirði; Þjónustuver Mosfellsbæjar, Þverholti 2, Mosfellsbæ; Íþróttamiðstöðin Varmá, Mosfellsbæ, Sundlaug Álftaness, Sundlaug Grafarvogs og Skútunni, Akranesi. 



Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica