Breytingar á þjónustu leiðar 19 vegna brottfalls leiðar S5
Frá og með þriðjudeginum eftir verslunarmannahelgi (8. ágúst) mun akstur á leið 19 verða til miðnættis. Upplýsingar um síðustu ferðir verða kynntar hér á vefnum um leið og breytingin tekur gildi.
Vetraráætlun tekur gildi sunnudaginn 20. ágúst. Þá verða gerðar lítils háttar breytingar á tímatöflur leiðar 19 og S6, með það fyrir augum að bæta tengingar milli þessara leiða í Ártúni. Með þessu móti verður biðtími fyrir íbúa Árbæjar- og Seláshverfa og í Norðlingaholti lágmarkaður, bæði þegar ferðast til og frá þessum hverfum.
Ný leiðabók verður gefin út um leið og vetraráætlun tekur gildi. Ráðgjafinn á vef Strætó bs verður uppfærður með hliðsjón af framangreindum breytingum, sem og vegna þeirrar staðreyndar að ekki verður hafinn akstur á 10 mínútna tíðni á stofnleiðum að nýju, er vetraráætlun tekur gildi.
