Aðhaldsaðgerðum Strætó bs ætlað að stöðva 360 millj. kr. hallarekstur
Stöðug fækkun farþega og mikil fjölgun einkabíla er höfuðorsök vandans
Nýkjörin stjórn Strætó hefur haldið nokkra fundi um rekstrarvandann. Nú er ljóst að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, eigendur Strætó, munu ekki leggja fram meira fé til að rétta af reksturinn og viðhalda taprekstri. Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir eigendur gera þá eðlilegu kröfu að reksturinn sé innan heimilda. Hann segir hækkandi eldsneytiskostnað, aukna verðbólgu, launahækkanir, gengisþróun, en fyrst og fremst fækkun farþega, samfara sívaxandi fjölda bifreiða í einkaeign, vera lykilþætti í erfiðum rekstri fyrirtækisins að undanförnu.
Stjórn Strætó hefur því ákveðið að hefja ekki á ný akstur á 10 mínútna tíðni á stofnleiðum, eins og var í síðustu vetraráætlun. Til að vega upp á móti fækkun ferða á stofnleiðum verður aukavögnum bætt við á mestu annatímum. Stofnleið S5 verður lögð niður en breytingar gerðar á þjónustutíma leiðar 19 til mótvægis.
„Þessar aðhaldsaðgerðir munu óhjákvæmilega leiða til skerðingar á þjónustu og þykir okkur það mjög miður. Við treystum því að viðskiptavinir Strætó sýni því skilning að eigendur byggðasamlagsins geti ekki veitt fjármagni til fyrirtækisins umfram heimildir á tímum nauðsynlegra aðhaldsaðgerða á vegum ríkis og sveitarfélaga,” segir Ásgeir Eiríksson.
Stofnfé Strætó var 100 millj. kr. á miðju ári 2001. Eigið fé var komið í 180 millj. kr. í árslok 2004. Um síðustu áramót var eigið fé hins vegar orðið neikvætt um 18 millj. króna eftir 200 millj. kr. tap á árinu 2005.
