Fréttir
Ármann Kr. Ólafsson er nýr formaður stjórnar Strætó bs
Í stofnsamþykkt Strætó bs. er kveðið á um að stjórn skipti sjálf með sér verkum, og skal formennska skiptast milli aðildarsveitarfélaganna. Kjörtímabil stjórnar er 2 ár, og mun því núverandi stjórn sitja þar til í júní 2008. Aðrir í stjórn eru sem hér segir: Erling Ásgeirsson (Garðabær), Guðmundur Rúnar Árnason (Hafnarfjörður), Haraldur Sverrisson (Mosfellsbær), Kristján Sveinbjörnsson (Álftanes), Sigrún Edda Jónsdóttir (Seltjarnarneskaupstaður) og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir (Reykjavík).
