Akstur á þjóðhátíðardaginn 17. júní
Biðstöðvar á Geirsgötu eru á móts við Essó á leið vestur í bæ, en í aðrein að Kalkofnsvegi á leið að Hlemmi. Það er engin biðstöð á Sæbraut frá Hlemmi að Geirsgötu.
Stofnleiðir 1, 3, 4, 5 og 6 aka frá Hlemmi um Snorrabraut, Sæbraut, Geirsgötu, Mýrargötu, Ánanaust og Hringbraut þar til komið er að Þjóðminjasafni, en þar eftir er hver vagn um sig kominn á rétta leið. Sama er þegar komið er til baka þá er ekin sama leið vestur Hringbraut, Ánanaust, Mýrargötu, Geirsgötu, Sæbraut, Snorrabraut, Hverfisgötu og að Hlemmi.
Leið 11 ekur þessa fyrrnefndu leið allt þar til komið er að Birkimel sem er rétt leið en þegar komið er frá Nesi á Birkimel er ekið um Hringbraut að Melatorgi og vestur Hringbraut á sama hátt og áðurnefndir vagnar.
Leið 12 ekur þessa sömu leið frá Hlemmi þar til komð er inn á rétta leið á Suðurgötu og eins þegar ekin er Suðurgata frá Skerjafirði er ekið um Hringbraut, Ánanaust, Mýrargötu, Geirsgötu, Sæbraut, Snorrabraut, Hverfisgötu og að Hlemmi.
Leið 13 mun aka frá Hlemmi sömu leið og stofnleiðir en fara inn á rétta leið við Meistaravelli og aka af Eiðsgranda um Ánanaust, Mýrargötu, Geirsgötu, Sæbraut, Snorrabraut, Hverfisgötu og að Hlemmi.
Leið 14 mun ekki aka um Mýrargötu heldur frá Granda um Ánanaust, Hringbraut og inn á sína leið við Þjóðminjasafn. Á leið sinni til baka mun hann aka vestur Hringbraut út á Granda.
Leiðir 15 og 16 eru óbeyttar, sem og aðrar leiðir sem aka í austur frá Hlemmi.
