Fréttir
Breytingar á tímatöflum
Eftir að endurskoðað leiðakerfi tók gildi 5. mars s.l. hafa tímatöflur nokkurra leiða verið til skoðunar og umfjöllunar. Komið hefur á daginn að sumar þeirra þarfnast endurskoðunar við. Næstkomandi sunnudag 9. apríl verður tímatöflum á leiðum 12, S2 og 28 breytt lítilsháttar, og þær rýmkaðar.
Ný leiðabók hefur verið gefin út vegna þessara breytinga og fæst hún á skiptistöðvum. Tímatöflum þessara þriggja leiða hefur nú þegar verið breytt hér á heimasíðunni.
