Fréttir
Glitnir byggir upp við Kirkjusand
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag samning við Glitni (Íslandsbanka) um að bankinn kaupi byggingarrétt á hluta Strætólóðarinnar við Kirkjusand til frekari uppbyggingar bankans. Verðið sem greitt er fyrir byggingarrétt á lóðinni nemur 972 milljónum króna, en svæðið kemur til afhendingar í tveimur áföngum, haustið 2006 og haustið 2007.
Jafnframt er gert ráð fyrir að starfsemi Strætó flytjist að Breiðhöfða á lóð sem Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar hafði til umráða. Ráðgert er að sá hluti núverandi lóðar Strætó, sem næst liggur Laugarnesvegi og borgin heldur eftir, fari undir lágreista íbúðabyggð.
