Ánægja með breytt leiðakerfi
Nýju akstursleiðarnar voru vel nýttar nú í morgun sem sýnir að mikil þörf var á breytingunum. Lítið var um vandræði, misskilning og vegalausa farþega nú í morgun og svo virðist sem viðskiptavinir okkar hafi kynnt sér breyttar tímatöflur og aðrar breytingar sem gerðar voru á leiðakerfinu.
Leiðakerfisbreytingin gekk vel fyrir sig. Á laugardaginn var öllum upplýsingaspjöldum skipt út á stoppistöðvum. Þetta olli litlum sem engum misskilningi hjá viðskiptavinum okkar, enda sýndu þeir mikinn skilning og eiga þakkir skildar fyrir það.
Stjórnendur Strætó þakka viðskiptavinum sínum, vagnstjórum og öðrum starfsmönnum fyrir ábendingar og vona að með þessum breytingum sé leiðakerfið skilvirkara og Strætó verði raunverulegur valkostur fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins.
