klukkan er 09:15


Fréttir

Breytingar á leiðakerfi Strætó taka gildi 5. mars.

1.3.2006

Hér á eftir verður fjallaðu um breytingarnar, leið fyrir leið, hverfi fyrir hverfi og skiptistöð fyrir skiptistöð.

Stofnleiðir:

Leið S1 er óbreytt að öðru leyti en því að tímatöflum er breytt.

Leið S2:

Akstri um Kórahverfi og Vatnsendahverfi er hætt en bíllinn fer í staðinn framhjá Versölum. Um Kóra og Vatnsendahverfi ekur ný leið 28 (sjá neðan).

Akstri um Skeiðavog er hætt á þessari leið, en bíllinn fer í staðinn um Grensásveg, um Skeiðavoginn fer í staðinn ný leið 19 (sjá neðan).

Leið S3: Vagninn ekur nú hring rangsælis um Seljahverfið

Leið S4: Vagninn ekur nú hring um Vesturberg, Norðurfell og Austurberg

Leiðir S5 og S6 eru óbreyttar að öðru leiti en því að tímatöflum er breytt.

Almennar leiðir:

Leið 11: Vagninn er nú með endastöð í Mjódd og ekur því ekki um Dalveg, Dalsmára né Lindahverfið. Um Lindahverfið og Dalsmára fer nú ný leið 28 (sjá neðan). Akstri um Lindahverfi sunnan Fífuhvammsvegar er hætt vegna ónógrar eftirspurnar og lítillar notkunar. Viðskiptavinum okkar bendum við  á leið S2 á Fífuhvammsvegi og / eða nýja leið 28, en þær eru báðar í góðum göngutenslum við sunnanveðar Lindir og innan viðmiðunarmarka um göngufjarlægðir.

Leið 12: Vagninn snýr nú við með því að taka hring um Bíldshöfðann. Um Hamrahverfið ekur nú breytt leið 16 (sjá neðan).

Leið 13: Fer nú um Hamrahlíð í stað Bústaðvegs og Flókagötu í stað Háteigsvegar. Um Bústaðaveg vestan Miklubrautar fer ný leið 18.

Leiðir 14 og 15 eru óbreyttar að öðru leyti en því að tímatöflum er breytt.

Leið 16: Fer nú um Hamrahverfið réttsælis eða rangsælis eftir því hvort vagninn er á leið í bæinn eða úr bænum.

Leið 17: Ný leið sem ekur um Hóla, Berg og Fell í Breiðholti og fer sem leið liggur um Mjódd, Sogaveg og Suðurlandsbraut að Hlemmi.

Leið 18: Ný leið sem ekur um Grafarholt, Bústaðaveg og Snorrabraut að Hlemmi.

Leið 19: Ný leið sem ekur um Norðlingaholt, Selás,  Rofabæ, Ártúnsholt,  Ártúnsbrekku, Miklubraut, Skeiðarvog, Suðurlandsbraut og Laugaveg að Hlemmi.


Hverfaleiðir:

Leið 21:  Óbreytt.

Leið 22: Ekur nú Herjólfsgötu og Herjólfsbraut í stað Hjallabrautar (athugið að á meðan framkvæmdir fara fram á Herjólfsgötu verður ekið um Hjallabraut eins og gert er í dag).  Ekki verður ekið inn að Hrafnistu, en stoppistöð fyrir Hrafnistu er á mótum Herjólfsbrautar og Skjólvangs.

Leið 23: Ekur með nýjum hætti um Álftanes og er akstur hafinn um Jörfaveg að nýju.

Leið 24: Ekur nú Stórhöfða í stað Bíldshöfða

Gamla leið 25 í Grafarholti og Árbæ verður lögð niður sem hverfisleið. Um þjónustu í Grafarholti og Árbæ sjá í staðinn leiðir 18, 19 og S5.

Leið 25: Ný hringleið í Kópavogi. Ekur hring um austurbæ Kópavogs

Leið 26 er mikið breytt og er nú hringleið í vesturbæ Kópavogs. Um austurbæ Kópavogs aka leiðir S4, 25 og 28: Um Vatnsenda og Kórahverfi ekur leið 28 (sjá neðan).

Leið 27 er óbreytt að öðru leyti en því að tímatöflur breytast á kvöldin og um helgar.

Leið 28: Ný leið sem ekur um Vatnsendahverfi, Kórahverfi, Lindahverfi, Smáralind, Smárann og Digranesveg í Hamraborg.


Breytt þjónusta í hverfum:

Hér á eftir eru dregnar fram þær breytingar sem verða póstnúmer fyrir póstnúmer. Ekki er hægt að gera ráð fyrir að þessi listi sé tæmandi en farþegum er bent á að nánari upplýsingar má fá í leiðabókum, á kortum hér á www.bus.is, eða í síma 540 2700.

Seltjarnarnes

Engar breytingar verða á akstri innan Seltjarnarnesi en leiðir 11 og 13 eru þó breyttar utan Seltjarnarnes.

Reykjavík

Póstnúmer 107 og 101:Engar breytingar verða á þjónustu í Vesturbæ og Miðborg, en leiðir 11, 12 og 13 eru þó breyttar utan hverfisins.

Póstnúmer 103: Ný leið 18 fer Bústaðaveg endilangan. Leið 13 fer nú um Hamrahlíð í stað Bústaðvegs og Flókagötu í stað Háteigsvegar.

Póstnúmer 104: Aukin þjónusta á Suðulandsbraut. Leiðir 17 og 19 fara um Suðurlandsbraut, leið 17 fer um Grensásveg og leið 19 um Skeiðarvog og Suðurlandsbraut. Leið S2 fer nú Grensásveg í stað Skeiðarvogs.

Póstnúmer 105: Aukin þjónusta verður í hverfinu, nýjar leiðir 17 og 19 verða á Laugavegi og ný leið 18 fer um Bústaðaveg og Snorrabraut. Leið 13 fer nú um Hamrahlíð í stað Bústaðvegs og Flókagötu í stað Háteigsvegar.

Póstnúmer 108: Aukin þjónusta verður í hverfinu bæði á Suðulandsbraut, Bústaðavegi og Skeiðarvogi. Leið 17 fer fer sem leið liggur um Mjódd, Sogaveg og Suðurlandsbraut að Hlemmi. Leið 18 fer Bústaðaveginn endilangan og um Snorrabraut að Hlemmi og leið 19 um Suðurlandsbraut að Hlemmi.

Breiðholt : Póstnúmer 109 og 111: Aukin þjónusta. Leið S3 fer nú hring um Seljahverfið. Leið S4 ekur nú hring um Vesturberg, Norðurfell og Austurberg.: Ný leið 17 ekur um Hóla, Berg og Fell í Breiðholti og fer sem leið liggur um Mjódd, Sogaveg og Suðurlandsbraut niður á Hlemm. Leið 12 ekur ekki lengur Hólahringinn, við því hlutverki tekur leið 17.  Leið 24 er óbreytt innan hverfisins en lítilsháttar breytt utan hverfisins. Leið 26 ekur ekki lengur um Mjódd.

Póstnúmer 110. Ný leið 19 ekur nú hring um Norðlingaholtið sem leið liggur um Selásbraut, Rofabæ, Ártúnsholt og Suðurlandsbraut að Hlemmi. Leið 25 ekur ekki lengur um þessi hverfi. Ný leið 18 ekur um Grafarholt, Stórhöfða, Bíldshöfða, Bústaðaveg og Snorrabraut að Hlemmi. Leið 24 ekur nú Stórhöfða í stað Bíldshöfða áður. Leið 12 snýr nú við með því að taka hring um Bíldshöfðann. Leið 25 ekur ekki lengur um þetta hverfi. Leiðir 12 og 24 aka Straum en leið 19 Streng.

Grafarvogur póstnúmer 112: Leið 16 fer nú um Hamrahverfið réttsælis eða rangsælis eftir því hvort vagninn er á leið í bæinn eða úr bænum. Leið 12 ekur ekki lengur um þetta hverfi.

Póstnúmer 113: Ný leið 18 ekur um Grafarholt, Bústaðaveg og Snorrabraut niður á Hlemm. Leið 25 ekur ekki lengur um þetta hverfi.

Kjalarnes Póstnúmer 116: Engar breytingar verða á akstri í hverfinu.

Mosfellsbær

Engar breytingar verða á akstri í Mosfellsbæ.

Akranes

Engar breytingar verða á akstri á Akranesi, en tímatöflur á kvöldin og um helgar breytast.

Kópavogur

Póstnúmer 200: Tvær nýjar hringleiðir 25 og 26 ásamt nýrri hverfisleið 28 aka um hverfið. Hringleið 26 fer um Kópavogsbraut, Kársnesbraut, Nýbýlaveg, Túnbrekku og Digranesveg. Hringleið 25 fer um Hamraborg, Álfhólsveg, Nýbýlaveg, Hlíðarhjalla og Hlíðarveg. Hverfisleið 28 ekur um Vatnsendahverfi, Kórahverfi, Lindahverfi, Smáralind, Smárann og Digranesveg í Hamraborg og sömu leið til baka. Aðrar leiðir breytast ekki í hverfinu en leiðum S2 og 24 er lítilsháttar breytt utan hverfisins. Leið 11 ekur ekki lengur um Dalveg..

Póstnúmer 201 og 203: Ný leið 28 ekur um Vatnsendahverfi, Kórahverfi, Lindahverfi, Smáralind, Smárann og Digranesveg í Hamraborg og sömu leið til baka. Leið S2 hættir akstri um Kórahverfi er en bíllinn fer í staðinn framhjá Versölum. Leið 24 er lítilsháttar breytt utan hverfisins. Leið 11 ekur ekki lengur um hverfið heldur endar í Mjódd.

Garðabær

Engar breytingar verða á akstri í Garðabæ

Hafnarfjörður

Leið 22: Ekur nú Herjólfsgötu og Herjólfsbraut í stað Hjallabrautar (athugið að á meðan framkvæmdir fara fram á Herjólfsgötu verður ekið um Hjallabraut eins og gert er í dag).

Skiptistöðvar

Nýjar og breyttar leiðir leiða eðlilega af sér að miklar breytingar verða á tímatöflum er þeim farþegum sem eru háðir skiptingum bent á að skoða nýja leiðabók vandlega við upphaf ferðar eða afla sér nánari upplýsinga hér á www.bus.is, eða síma 540 2700, hér verður þó bent á nokkur atriði sem sérstaklega er vert að hafa í huga.

Mjódd:

        Leið 26 fer ekki lengur á milli Mjódd og Hamraborgar.

          Leið 11 verður með endastöð í Mjódd og fer því ekki í Kópavog eða Smáralind.

          Leið 12 fer ekki í Hamrahverfið.

          Ný leið 17 býður upp á styttri ferðatíma og færri skiptingar

Hamraborg:         

          Leið 26 fer ekki lengur á milli Hamraborgar og Mjóddar.

          Leið S2 fer ekki lengur í Kóra, Vatnsenda, það gerir nú ný leið 28.

Ártún:

          Leið 25 sér ekki lengur um þjónustu við Grafarholt/Árbæ.
Leið 18 tekur við hlutverki leiðar 25 í Grafarholti, og hefur viðkomu í Ártúni á Veturlandsvegi.  Leið 19 tekur við hlutverki leiðar 25 í Árbæjarhverfunum, og hefur viðkomu í Ártúni á Breiðhöfða. 

          Leið 12 fer ekki lengur í Hamrahverfi, það gerir nú leið 16.

          Nýjar leiðir 18 og 19 bjóða upp á styttri ferðatíma og færri skiptingar

Hlemmur:

          Nýjar leiðir 17 , 18 og 19 bjóða upp á styttri ferðatíma og færri skiptingar


 

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica