Farþegum Strætó fjölgar um 6.9%
Í janúar á síðasta ári ferðuðust alls 728.887 farþegar með Strætó en nú í ár voru farþegarnir 779.233. Mest var fjölgunin hjá þeim sem nota fargjaldakort, enda hefur notkun þess umtalsverðan sparnað í för með sér. Almennt fargjald hjá Strætó kostar 250 krónur en handhafi Græna kortsins, sem gildir í mánuð, greiðir 125 krónur fyrir hverja ferð, miðað við að farnar séu tvær ferðir á dag, fimm daga vikunnar. Þeir sem nota Rauða kortið greiða 96 krónur fyrir hverja ferð, miðað við sömu forsendur og handhafar Skólakortsins greiða 65 krónur fyrir ferðina.
Nýtt samræmt leiðarkerfi fyrir allt höfuðborgarsvæðið tók gildi í júlí á síðasta ári. Síðan þá hafa stjórnendur Strætó unnið úr ábendingum frá viðskiptavinum sínum og vagnstjórum um þætti sem betur mega fara í leiðarkerfinu. Þeirri vinnu er nú lokið og munu breytingar á leiðarkerfinu taka gildi í byrjun mars.
Það er stefna Strætó bs. að bjóða þjónustu sem sinnir þörfum viðskiptavina sinna á sem hagkvæmastan hátt og því er skipulag leiðakerfisins í sífelldri endurskoðun og eru breytingarnar í mars liður í því.
Alls starfa um 360 manns við leiðarkerfi Strætó, 115 strætisvagnar aka um leiðarkerfið, samtals 9.300.000 kílómetra á ári um sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og milli Reykjavíkur og Akraness.
