klukkan er 09:14


Fréttir

Vel á vegi stödd í umferðinni

14.2.2006

Fyrir liggur að strætisvagnar eru mikið í umferðinni og því skiptir miklu máli að lögð sé áhersla á umferðaröryggi hjá ökumönnunum. Með undirritun þessa samnings er ljóst að allir strætisvagnabílstjórar á höfuðborgarsvæðinu taka þátt í þessu verkefni, en samningur við Hagvagna var undirritaður fyrir skömmu. Þá má og geta þess að slíkur samningur hefur verið gerður við eitt af stærstu fyrirtækjunum  í landflutningum, Landflutninga-Samskip.  Gert er ráð fyrir að á annan tug fyrirtækja taki þátt í verkefninu á næstu mánuðum.

Það voru Birgir Hákonarson framkvæmdastjóri umferðaröryggissviðs Umferðarstofu og Ásgeir Eiríksson framkvæmdastjóri Strætó bs. sem undirrituðu samninginn.



Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica