Fréttir
Endurbætur á leiðakerfi Strætó í mars
Með breytingunum er verið að sníða af hnökra sem eru á núverandi leiðakerfi og því er ekki um byltingarkenndar breytingar að ræða. Það er von Strætó að endurbætt leiðakerfi leiði af sér þéttriðið net almenningssamgangna sem er raunhæfur ferðamáti fyrir sífellt fleiri íbúa höfuðborgarsvæðisins.
Það er stefna Strætó bs. að bjóða þjónustu sem sinnir þörfum viðskiptavina sinna á sem hagkvæmastan hátt og því er skipulag leiðakerfisins í sífelldri endurskoðun og eru breytingarnar í mars liður í því.
Breytt leiðakerfi verður aðgengilegt hér á vefnum innan tíðar.
