Sorpinu breytt í eldsneyti á strætó
Umhverfisvænt eldsneytið unnið úr sorphaugum í Álfsnesi og er að jafnaði 30% ódýrara en bensín eða díselolía
Metanknúnar bifreiðar eru í senn afar umhverfisvænar og hagkvæmar í rekstri. Þannig menga 113 bifreiðar, sem nota metan, jafn mikið og ein bifreið, sem gengur fyrir bensíni eða díselolíu. Metanið er að auki alla jafna um 30% ódýrara en bensín.
Metanið sem Strætó bs. notar á vagna sína er unnið úr sorpinu á urðunarstað höfuðborgarsvæðisins í Álfsnesi. Samhliða kynningu Strætó bs. á nýju metanvögnunum kynnti Metan hf., dótturfyrirtæki Sorpu bs., nýja og mun afkastameiri hreinsistöð fyrir metangas. Þar er nú þegar geta til þess að framleiða metan á um 4.000 bifreiðar á ári.
Kynningin á nýju metanvögnunum fór fram í Álfnesi. Við það fluttu stutt ávörp þau Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri, Strætó bs., Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Metan hf. og Peter Boisen, framkvæmdastjóri ENGVA (European Natural Gas Vehicle Association).
