Nýr vefur Strætó
Endurbættur rafrænn ráðgjafi
Ráðgjafinn er afar einfaldur í notkun. Notandinn slær inn þann komutíma sem hentar honum, brottfararstað og áfangastað. Ekki er nauðsynlegt að vita nákvæmt heimilisfang, brottfarar- og áfangastaðar, því ráðgjafinn leiðbeinir notandanum til þess að auka nákvæmni leitarinnar. Fjöldi kennileita er innbyggður í ráðgjafann, svo sem bókasöfn, íþróttamannvirki, kirkjur, söfn, sundlaugar, verslunarmiðstöðvar og fleira.
Rafræni ráðgjafinn býður einnig upp á gagnvirk kort sem auðveldar fólki að átta sig á leiðinni sem vagninn ekur. Kortin er einnig hægt að nota til þess að velja leiðir milli staða og borgarhverfa.
Á vef Strætó er hægt á einfaldan hátt að finna upplýsingar um allar akstursleiðir strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu, tímatöflur og fleira. Vefurinn er á ensku, auk íslensku, en það auðveldar erlendum ferðamönnum að ferðast um borgina.
Nýi vefurinn og ráðgjafinn er aðgengilegur fyrir fatlaða sem fyrr en vefurinn hefur verið vottaður af Öryrkjabandalagi Íslands og Sjá ehf. með tilliti til fatlaðra notenda.
