klukkan er 08:57


Fréttir

Pétur Sigurðsson - minning

20.1.2006

Það var okkur sem stöndum að Strætó bs. mikil harmafregn þegar ljóst varð að Pétur Sigurðsson vagnstjóri hafði látist í umferðarslysi. Okkur setti hljóð við fregnina um skyndilegt og hörmulegt fráfall góðs félaga og samstarfsmanns. Það var okkur einnig mikið áfall sú staðreynd að í fyrsta sinn í hartnær 75 ára sögu Strætó og forvera þess, Strætisvagna Reykjavíkur, hefði starfsmaður fallið frá þar sem hann var að sinna starfi sínu sem vagnstjóri.

Pétur kom til starfa hjá Strætó fyrir fimm árum og bauð strax af sér góðan þokka. Hann reyndist okkur góður og traustur samstarfsmaður og félagi og var því vel liðinn í okkar hópi. Pétur hafði jafnframt til að bera það sem prýðir bestu menn í því mikilvæga þjónustustarfi sem hann gegndi. Hann var lipur og kurteis við samstarfsmenn og farþega, vandvirkur í starfi sínu á alla lund og setti öryggi sitt og farþega sinna ofar öðru.

Við kveðjum Pétur Sigurðsson nú hinsta sinni með virðingu og vináttu í huga. Hans er sárt saknað úr okkar röðum. Missir fjölskyldu hans, vina og annarra aðstandenda er mikill. Við færum þeim innilegar samúðarkveðjur.

Fyrir hönd stjórnar og starfsfólks Strætó bs.,

Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri



Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica