Fréttir
Yfirlýsing frá starfsfólki og stjórn Strætó bs.
Starfsfólk og stjórn Strætó bs. er harmi slegin vegna hins hörmulega umferðaslyss í morgun þar sem strætisvagnsstjóri beið bana.
Tildrög slyssins eru óljós, en vagnstjórinn var einn í bílnum þar sem hann hafði lokið áætlunarakstri og var að ferja strætisvagninn að athafnasvæði Strætó bs. við Kirkjusand.
Hugur allra hjá Strætó er hjá fjölskyldu félaga okkar og við vottum aðstandendum hans sorgar- og samúðarkveðjur.
Fyrir hönd starfsfólks og stjórnar Strætó bs.,
Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri
