Endurbættur vefur Strætó
Nýr og endurbættur vefur strætó www.straeto.is hefur að bjóða upp á nýja virkni einnar sinnar tegundar á landinu, þar sem hægt er að fá rauntíma upplýsingar um vagna eða leiðir innan við sekúndu eftir að heimilisfang hefur verið slegið inn.
Á vefnum er ferðaráðgjafi sem leiðbeinir notendum um heppilegar leiðir milli staða. Nú er hægt að skrá inn heimilisfang þeirra staða sem ferðast skal frá og til en einnig er boðið upp á það að velja kennileiti þegar við á. Ráðgjafinn miðar við rauntíma og finnur heppilegustu leiðina út frá því en einnig er hægt að breyta tíma og degi eins og við á.
Til viðbótar er hægt að velja leið beint af korti og ráðgjafinn skilar tillögu að leiðum. Einnig er hægt að skoða allar leiðir Strætó bs á korti sem og tímatöflur allra leiða.
Bætt þjónusta við erlenda ferðamenn
Vefurinn er nú einnig á ensku fyrir þá ferðamenn sem heimsækja höfuðborgina, sem er mikilvæg þjónusta Strætó bs.
Nýi vefurinn er aðgengilegur fyrir fatlaða sem fyrr en vefurinn hefur verið vottaður af Öryrkjabandalagi Íslands og Sjá ehf. með tilliti til fatlaðra notenda.
