klukkan er 09:11


Fréttir

Akranes tengist leiðakerfi Strætó bs

28.12.2005

Frá og með áramótum mun leiðakerfi Strætó bs. tengjast Akranesi en boðið verður upp á yfir 80 ferðir á viku á milli Akraness og Reykjavíkur. Þetta mun hafa í för með sér byltingu í samgöngumálum fyrir Skagamenn og þá sem vilja heimsækja Akranes frá Reykjavík. Um leið hættir gjaldið í Hvalfjarðargöng að vera sá farartálmi sem það hefur verið fyrir þá sem vilja heimsækja Skagann þar sem sama gjald mun gilda í Strætó, hvort heldur sem leiðin liggur á Skagann eða í Skerjafjörð, í Laugarnesið eða á Langasand.

Sem dæmi má nefna að háskólanemar geta stundað nám í Reykjavík en búið á Akranesi; ferðin frá Akranesi að aðalbyggingu Háskóla Íslands tekur t.d. um eina klukkustund með Strætó. Skagamenn geta tekið Strætó og skroppið í bíó og heim aftur að því loknu, farið út að borða í miðborg Reykjavíkur, farið í Kringluna eða til læknis og átt vísa ferð til baka, enda er Strætó í ferðum á milli Reykjavíkur og Akraness á u.þ.b. klukkustundar fresti alla virka daga og um helgar líka.

Sömuleiðis geta borgarbúar stigið upp í vagninn á næstu stoppistöð og verið komnir upp á Skaga skömmu síðar. Þetta opnar ekki síst ýmsa möguleika fyrir eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu, sem geta með Strætó átt skemmtilegan dag á Skaganum eða skroppið þangað í síðdegiskaffi fyrir 90 krónur hvora leið, á afsláttarkjörum Strætó bs. fyrir eldri borgara. Fleiri hópar, t.d. leikskóla- og grunnskólabörn, auk almennings geta svo að sjálfsögðu nýtt sér þessa nýju og skemmtilegu viðbót við leiðakerfi Strætó.

Með tilkomu Strætó verður mun auðveldara fyrir íbúa nágrannasveitarfélaga t.d. á Kjalarnesi, að nýta sér ýmsa þjónustu á Akranesi, t.d. verslun og aðra þjónustu, m.a. Fjölbrautaskólans á Akranesi og Sjúkrahúss Akraness.

Almennt fargjald Strætó er 220 krónur en ýmsir afsláttarmöguleikar eru í boði. Hægt er að kynna sér nánar afsláttarkjör og almenn fargjöld Strætó, ásamt leiðakerfi og öðrum gagnlegum upplýsingum á vef Strætó bs., www.straeto.is, en hin nýja leið á Akranes verður sett þar inn og kynnt nánar á næstu dögum.

Aksturinn hefst á Nýársdag, fyrsta ferð frá Mosfellsbæ er kl. 15:30 og frá Akranesi kl. 15:27. Endastöð á Akranesi er við Skútuna.



Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica