hvert viltu komast...
klukkan er 14:42


Fréttir

Þrjár nýjar leiðir teknar í gagnið í febrúar nk.

22.12.2005

Á haustmánuðum og fyrri hluta vetrar hefur verið farið ofan í saumana á leiðakerfinu, að sögn Ásgeirs Eiríkssonar, forstjóra Strætó bs. „Við hjá Strætó höfum gert okkur far um að hlusta eftir ábendingum vagnstjóra og farþega um hvað megi betur fara og eins hvað sé vel gert. Í október var framkvæmd farþegatalning, og fengust þá mikilvægar upplýsingar um nýtingu einstakra leiða. Að öllu þessu athuguðu höfum við gert úttekt á leiðakerfinu og tekið ákvörðun um að nauðsynlegt sé að gera ákveðnar breytingar, sem munu taka gildi í febrúar næstkomandi.“

Helstu breytingarnar eru þær að þrjár nýjar leiðir verða teknar í notkun, tvær í Reykjavík og ein í Kópavogi. „Það er beinlínis gert til að koma til móts við ábendingar og bæta þjónustuna,“ segir Ásgeir. „Síðan er um að ræða aðlögun og aðrar minniháttar breytingar á leiðakerfinu.“

Fyrst er að nefna leið sem tengir Fella- og Hólahverfi við Mjóddina og tengir hana síðan áfram við Hlemm um Sogaveg, Grensásveg og Suðurlandsbraut. „Við höfum fengið langflestar kvartanir um að þessa leið vantaði,“ segir Ásgeir, „en hún er nánast sú sama og leið 12, sem var í gildi fyrir breytingarnar í sumar. Þarna verður aftur komið á tengingu við Laugardalinn og áfram niður á Hlemm um Suðurlandsbraut.“

Í öðru lagi ber að nefna leið sem fer úr Grafarholti um Hálsa- og Höfðahverfi og þaðan um Bústaðaveg að Hlemmi. „Með þessu móti er bætt þjónusta við Grafarholtið en ekki síst verið að koma á tengingu svokallaðs norðaustursvæðis við Bústaðaveginn. Þannig kemst t.d. hinn fjölmenni vinnustaður Landspítali-háskólasjúkrahús í Fossvogi í betra samband við leiðakerfið,“ bendir Ásgeir á.

Loks skal nefna nýja hringleið í Kópavogi. Hún liggur um vesturbæinn, Nýbýlaveg, Þverbrekku, Álfhólsveg og Hamraborg.

Allar þessar breytingar munu síðan hafa áhrif á ýmsar aðrar leiðir. T.a.m. verður leið 13 breytt þannig að akstur verður hafinn að nýju um Hamrahlíð. Þá ber að nefna að leið 16 mun aka hring um Hamrahverfi, í báðar áttir. Hverfið tengist þannig að nýju við Grafarvoginn sem og við miðborgina.



Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica