klukkan er 09:17


Fréttir

75% svifriks af völdum umferðar

7.12.2005

Á undanförnum vikum hafa öðru hvoru ríkt staðviðri hér á höfuðborgarsvæðinu. Þegar vindhraði er lítill, hitastig lágt og loftið þurrt mælist magn svifryks hátt, og á slíkum dögum má glöggt sjá hvernig mengunin liggur yfir borginni.  Með því að nýta sér almenningssamgöngur geta íbúar höfuðborgarsvæðisins  lagt sitt af mörkum til minni mengunar.  Strætisvagnar á höfuðborgarsvæðinu aka á ónegldum vetrarhjólbörðum, og eru því ekki að spæna upp malbik eins og þeir bílar sem aka á negldum hjólbörðum.  Eftir því sem fleiri eru í hverjum strætisvagni minnkar útblásturinn miðað við hvern einstakling.  Það er því full ástæða til að gefa almenningssamgöngum nánari gaum og hvíla bílinn inn á milli.  Frétt umhverfissviðs um svifryksmengunina má lesa í heild sinni með því að smella hér. 

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica