klukkan er 08:37


Fréttir

Til hamingju með daginn, konur!

24.10.2005

Strætó bs verður í nánu samstarfi við lögregluna á kvennafrídaginn. Búast má við miklum kvennafjölda í miðborginni síðdegis, þegar efnt verður til útifundar á Ingólfstorgi.  Strætó bs hvetur konur til að taka strætó í bæinn, því ella má búast við miklu umferðarálagi og töfum.  Stofnleiðir aka á 10 mínútna tíðni kl. 15:30 - 18:00, þannig er tryggt að greiðlega takist að flytja fundarkonur úr miðborginni að loknum útifundinum.  Reynt verður eftir fremsta megni að aka samkvæmt áætlun, en búast má við einhverjum töfum, einkum þegar gangan frá Skólavörðuholtinu fer yfir Lækjargötu.  Allt kapp verður hins vegar lagt á að tryggja að vagnarnir komist leiðar sinnar um miðborgina, í nánu samstarfi við lögregluna.

Strætó bs óskar öllum konum til hamingju með daginn og hvetur til þátttöku!

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica