Fréttir
Ný leiðabók Strætó bs. með lagfærðum tímatöflum
Strætó bs. hefur gefið út nýja leiðabók sem tekur gildi frá og með laugardeginum 15. október. Hafa tímatöflur nokkurra leiða verið lagfærðar og aksturstími leiða 12 og 16 lengdur. Með þessum breytingum er verið að koma til móts við ábendingar frá vagnstjórum og farþegum auk þess sem tekið er mið af reynslunni frá því nýja leiðakerfið var tekið í notkun 23. júlí síðastliðinn.
Nýja leiðabókin fæst ókeypis á skiptistöðvum og sölustöðum Strætó bs.
