hvert viltu komast...
klukkan er 00:28


Fréttir

Afhentu Birni 1,3 milljónir króna

11.10.2005

Fulltrúar söfnunarátaks til handa Birni Hafsteinssyni vagnstjóra, sem missti báða fætur í bílslysi á mótum Laugavegar og Kringlumýrarbrautar 19. ágúst sl., afhentu honum 1,3 milljóna króna ávísun á laugardag. Svo skemmtilega vildi til að þá var einmitt 55 ára afmælisdagur Björns.

Auk þess að efna til söfnunarátaks stóðu samstarfsfélagar Björns fyrir styrktartónleikum þar sem listamenn gáfu vinnu sína og allur ágóði rann beint til Björns. Er búist við að heildarupphæð söfnunarinnar nemi um tveimur milljónum króna.

Björn vill koma á framfæri þökkum til allra sem stutt hafa hann í kjölfar slyssins en hans bíður nú endurhæfing.

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica