Fréttir
Opnun Snorrabrautar - akstur um gömlu Hringbraut
Snorrabraut var opnuð fyrir umferð að nýju síðdegis laugardaginn 9. september, eftir að lokið var við gerð undirganga fyrir gangandi vegfarendur undir götuna. Þar með hefst akstur strætisvagna að nýju vestur gömlu Hringbraut. Um er að ræða leiðir S1, S3, S4, S5 og S6. Jafnframt munu nú aksturleiðir á leiðum 14, 15 og 16 verða samkvæmt leiðabók, en þær aka um Snorrabraut.
