klukkan er 10:35


Fréttir

Vel heppnaðir fjáröflunartónleikar

5.9.2005

Vel á aðra milljón króna safnaðist á tónleikum sem haldir voru til styrktar Birni Hafsteinssyni strætóbílstjóra á Broadway um helgina en Björn missti báða fætur í árekstri strætisvagns og vörubíls 19. ágúst síðastliðinn.

Vinir og velunnarar Björns stóðu að skemmtuninni þar sem fjöldi landsþekktra listamanna kom fram. Eru öllum sem stóðu að skemmtuninni færðar bestu þakkir.

Að gefnu tilefni skal tekið fram að fjársafnanir vegna slyss eða sjúkdóma eru undanþegnar skattlagningu og því rennur söfnunarféð óskert til Björns.

Þeir sem vilja styrkja söfnunina með fjárframlögum er bent á reikning söfnunarinnar í Íslandsbanka, reikningsnúmer 0537-14-607300, með kennitölu 500501-3160.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica