Tillögur um úrbætur samþykktar í stjórn
Stjórn Strætó bs. samþykkti á fundi sínum í morgun tillögur að úrbótum á nýju leiðakerfi sem koma eiga til móts við athugasemdir sem borist hafa eftir að leiðakerfið var tekið í notkun þann 23. júlí síðastliðinn. Í tillögum stjórnar Strætó er sérstaklega tekið tillit til þarfa vaktavinnufólks á heilbrigðisstofnunum. Var samþykkt að þjónustutími á leiðum 12 og 16 verði að hluta lengdur til miðnættis frá og með 15. október næstkomandi.
Samþykkt var að gera lagfæringar á tímatöflum þeirra leiða þar sem erfiðlega hefur tekist að halda áætlun, sérstaklega á leiðum S1, 11, 13, 14, 22 og 24. Verða tengingar á skiptistöðvum milli leiða athugaðar sérstaklega og lagfærðar eftir því sem unnt er. Þessar breytingar kalla á fleiri vagna en gert var ráð fyrir við upptöku leiðakerfisins. Þá óskar Strætó bs. eftir samvinnu við aðildarsveitarfélögin um gerð nýrra biðstöðva, m.a. við Kleppsspítala.
Loks var samþykkt að hefjast handa við úttekt á leiðakerfinu þar sem sérstaklega verði hugað að athugasemdum og ábendingum frá vagnstjórum og farþegum og ennfremur kannað viðhorf til leiðakerfisins og þjónustutímans. Niðurstöður úttektarinnar verða nýttar við endurskoðun leiðakerfisins sem gert er ráð fyrir að geti orðið um áramót.
