Fréttir
Skólakortið fær góðar viðtökur
Farmiðasala í ágúst hefur verið mjög góð. Munar þar mest um mikla eftirspurn eftir skólakortinu sem er fyrir alla farþega og gildir til 1. júní 2006. Verð Skólakortsins er 25.000 krónur. Sé kortið keypt í september hagnast notendur Strætó áfram umtalsvert en hvatinn til að kaupa kortið hverfur þegar líður á október.
