klukkan er 11:00


Fréttir

Ráðgjafinn hjálpar farþegum að finna hagkvæmustu leiðina

Öflugt hjálparforrit í notkun á vefsvæði Strætó bs.

23.8.2005

Nýr og endurbættur Ráðgjafi hefur verið tekinn í notkun á vefsíðu Strætó bs. Ráðgjafinn er öflugt hjálparforrit sem veitir nákvæmar upplýsingar um áfangastaði og ferðir strætó með það að markmiði veita aukna þjónustu og að koma notendum milli staða á höfuðborgarsvæðinu á sem hagkvæmastan hátt.

Ráðgjafinn blasir við notendum þegar slóðin að vefsíðu Strætó bs. hefur verið slegin inn. Notandinn skráir inn brottfarar- og áfangastað í viðeigandi reiti, nákvæm heimilisföng eða brottfarar- og áfangastaði úr vallista. Þá er sleginn inn ákjósanlegur komutími á áfangastað og hvaða dag vikunnar á að ferðast. Þegar smellt er á hnappinn „Finna leiðir“ birtist leitarniðurstaða með allt að fjórum tillögum að ferðatilhögun. Besti kosturinn er efst. Með hverri tillögu eru krækjur þar sem skoða má kort og sjá strætóleiðirnar nánar.

Hver tillaga felur í sér heildarferðatíma, þ.e. gönguvegalengd og göngutíma að næstu biðstöð, númer leiðar og komutíma, ferðatíma á áfangastað eða skiptistöð, biðtíma á skiptistöð og ferðatíma með næstu leið og loks gönguvegalengd og göngutíma að áfangastað. Hafa verður í huga að göngutími er aðeins til viðmiðunar en fjarlægðir eru miðaðar við loftlínu með nálgun upp á 10 metra og aðstæður geta verið mismunandi.

Ráðgjafinn er unninn af Verkfræðistofunni Hnit og Hugsmiðjunni sem hannaði notendaviðmót. Vænta má smávægilegra breytinga og fínstillinga á Ráðgjafanum á grundvelli reynslu.

Dæmi um notkun Ráðgjafans: Notandi á heima í Engihjalla 4 og vinnur í Tryggvagötu 19 þar sem mæting er kl. 8:00 á morgnana. Þegar brottfarar- og áfangastaður og komutími (8:00) hefur verið sleginn inn er smellt á „Finna leiðir“. Samkvæmt tillögu 1, sem er besti kosturinn, þarf viðkomandi að fara að heiman eigi síðar en kl. 7:35 og ganga 270 metra að biðstöð á Nýbýlavegi. Áætlað er að gangan taki 4 mínútur. Þá á leið 4 (stofnleið) að koma og aka sem leið liggur að útitaflinu í Lækjargötu. Komutími þar er kl. 7:54. Viðkomandi þarf síðan að ganga um 210 metra að Tryggvagötu 19 sem áætlað er að taki 3 mínútur. Mæting á vinnustað á samkvæmt tillögu 1 að vera kl. 7:57. Heildarferðatíminn er þannig 22 mínútur.

Strætó bs. hvetur viðskiptavini sína til að nota Ráðgjafann svo nýja leiðakerfið nýtist þeim sem best.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica