klukkan er 08:03


Fréttir

Full þjónusta í leiðakerfi Strætó bs.

22.8.2005

Tekist hefur að manna allar vaktir hjá Strætó bs. þannig að full þjónusta verður veitt í nýju leiðakerfi frá og með mánudeginum 22. ágúst. Þetta þýðir að Strætó getur staðið við fyrirheit um að akstur á stofnleiðum verði á allt að 10 mínútna fresti á álagstímum alla virka daga.

 

Nýtt leiðakerfi Strætó bs. var tekið í notkun laugardaginn 23. júlí en með því er í fyrsta sinn komið á sameiginlegu, samræmdu leiðakerfi almenningssamgangna fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Markmiðið er að efla almenningssamgöngur þannig að þær verði raunhæfur valkostur og fleiri taki strætó.

 

Samhliða upptöku leiðakerfisins var gefin út leiðabók og henni dreift til allra heimila á höfuðborgarsvæðinu. Upplýsingar um nýja leiðakerfið er einnig að finna á vefsvæði Strætó bs. á slóðinni www.bus.is/www.strætó.is en þar hafa notendur aðgang að hjálparforritinu Ráðgjafanum. Einnig er hægt að hringja í frítt þjónustunúmer Strætó bs. í síma 800 1199.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica