hvert viltu komast...
klukkan er 00:57


Fréttir

Yfirlýsing frá Strætó bs. vegna umferðarslyss

19.8.2005

Stjórn og starfsmenn Strætó bs. eru harmi slegin vegna slyss sem varð á mótum Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar í morgun, þegar vörubíll á leið norður Kringlumýrarbraut skall á strætisvagni sem var á leið vestur yfir gatnamótin. Hugur stjórnar og starfsmanna er hjá vagnstjóranum og fjölskyldu hans en hann slasaðist alvarlega og er á gjörgæslu í kjölfar aðgerðar sem hann gekkst undir.

 

Allir farþegar strætisvagnsins, sex talsins, voru fluttir á slysadeild til skoðunar eftir slysið. Fjórir voru útskrifaðir eftir skoðun. Tveir farþegar eru áfram undir eftirliti lækna en meiðsli þeirra eru þó ekki talin alvarleg. Strætó bs. hefur þegar leitað til Rauða krossins um að veita þeim farþegum áfallahjálp sem þess óska. Þess ber að geta að allir farþegar í strætisvögnum eru slysatryggðir.

 

Rannsókn slyssins stendur yfir og því er enn of snemmt að fullyrða nokkuð um tildrög þess. Hins vegar benda fyrirliggjandi upplýsingar til þess að ekki megi rekja orsök slyssins til mistaka af hálfu vagnstjórans. Strætó bs. mun fylgjast grannt með rannsókn málsins.

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica