klukkan er 09:17


Fréttir

Smásögur hengdar á sætin í Strætó

Ungur rithöfundur finnur nýja birtingarleið

19.8.2005

Smásögur eftir Arndísi Þórarinsdóttur, nema í bókmenntafræði við Háskóla Íslands, munu hanga við sætin í vögnum Strætó bs. frá og með Menningarnótt. Smásögurnar, sem eru níu og eru prentaðar í um 200 eintökum, verða plastaðar og eru ætlaðar farþegum til lesturs.

Arndís sótti um styrk til að skrifa smásögur til Hins hússins en það hefur umsjón með verkefninu Skapandi sumarstörf á vegum Reykjavíkurborgar. Áður en kom að skriftum gerði hún sér ferð til Strætó bs. og kynnti þar hugmynd sína um að birta smásögur í vögnunum. Var Arndísi vel tekið og verður hugmynd hennar nú að veruleika.


„Þetta er skemmtileg leið til að koma sögunum á framfæri og það lá frekar beint við að leita til Strætó þar sem fjallað er á einn eða annan hátt um strætisvagna, borgina og borgarbúa í sögunum. Strætisvagnarnir eru auk þess upplagðir til lesturs því þar á fólk stund fyrir sjálft sig, þar er ekki verið að gera kröfur til tíma þess. Hins vegar eru sögurnar ekki skrifaðar með sérstakan markhóp í huga, þær ættu að höfða til flestra,“ segir Arndís sem er á leið til Bretlands í mastersnám í leikritun.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica