hvert viltu komast...
klukkan er 00:38


Fréttir
Frá Menningarnótt

Með Strætó á Menningarnótt

18.8.2005

 

Strætó bs. hvetur íbúa höfuðborgarsvæðisins til að nýta sér þjónustu strætisvagna ætli þeir að taka þátt í viðburðum Menningarnætur 20. ágúst næstkomandi. Mikill mannfjöldi safnast alla jafna saman í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt og getur verið erfitt um vik að fá bílastæði og eins að komast áfram á götunum þegar þúsundir stefna heim á svipuðum tíma.

 

Fyrir farþega sem koma í miðbæinn verður biðstöð á horni Skothúsvegar og Fríkirkjuvegar (á móts við Hljómskálann). Vagnar á leið út úr miðborginni fara frá biðstöðinni við Ráðhúsið í Vonarstræti. Strætó er því afar hentugur ferðamáti þegar komast þarf til og frá miðborginni á skjótan og öruggan hátt.

 

Á Menningarnótt munu strætisvagnar á almennum leiðum og hverfaleiðum aka klukkutíma lengur eða til miðnættis og vagnar á stofnleiðum munu aka til kl. 2.00 aðfaranótt sunnudags samkvæmt leiðabók.

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica