klukkan er 09:22


Fréttir
strato_logo_1

Strætó: borgarráð samþykkir forgang í umferðinni

11.8.2005

 

 

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að veita strætisvögnum forgang í umferðinni um Lækjargötu. Til suðurs verður strætóakrein á hægri akrein milli Hafnarstrætis og Austurstrætis og forgangsljós fyrir strætó á gatnamótum Austurstrætis og Lækjargötu. Til norðurs verður strætóakrein á hægri akrein allt frá Bókhlöðustíg að Hverfisgötu.

 

Þá var einnig samþykkt að strætó fái forgangsakrein við Miklubraut frá aðkeyrslu að bensínstöð austan Miklubrautar og nær akreinin um 150 metra vestur fyrir Stakkahlíð. Akreinin hefur þegar verið útbúin í tengslum við endurbætur á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar.

 

Þessi mál bæði fara sem tillögur til lögreglustjórans í Reykjavík sem tekur endanlega ákvörðun.

 

Að sögn Ásgeirs Eiríkssonar, framkvæmdastjóra Strætó bs., er þessi samþykkt í anda yfirlýstrar stefnu aðildarsveitarfélaga Strætó bs. um að þau tryggi strætisvögnum aukinn og samræmdan forgang í umferðinni. Þá sé mikilvægt að gera sér grein fyrir því að með forgangi strætó í umferðinni njóti farþegar þess hagræðis til fulls sem felst í því að ferðast með strætó en við upptöku nýs leiðakerfis hafi verið lögð áhersla á styttri ferðatíma. 

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica