Skólakortið: nýjung frá Strætó
- hagkvæmt fyrir alla
Farþegum Strætó býðst nýjung, Skólakortið, frá og með 15. ágúst nk. Skólakortið tekur mið af skólaárinu en er í boði fyrir alla. Kortið er gert til að koma til móts við óskir og þarfir skólafólks og annarra, sem nota strætisvagnana reglulega, um hagkvæman og ódýran ferðakost og gildir það allan veturinn.
Ávinningur af því að kaupa Skólakortið er umtalsverður en það mun gilda frá 15. ágúst til 1. júní 2006 eða í níu og hálfan mánuð. Ef kortið, sem kostar 25.000 kr., er t.d. keypt í lok ágúst má spara um 6.500 kr. frá því sem áður var hagkvæmast og sparnaður verður meiri ef kortið er keypt fyrr. Ef kortið er keypt strax við útgáfu þess er kostnaðurinn 2.632 krónur á mánuði. Þá veitir Skólakortið enn meiri afslátt en Rauða kortið að því gefnu að það sé keypt fyrir síðari hluta október og þeim mun meiri afslátt sem það er keypt fyrr.
Skólakortið er handhafakort, sem merkir að eigandi þess getur lánað það. Kortið er selt á öllum sölustöðum farmiða.
