klukkan er 08:11


Fréttir

Bókun frá stjórn Strætó bs. vegna nýs leiðakerfis

5.8.2005

Stjórn Strætó bs. samþykkti eftirfarandi bókun á fundi sínum í morgun, föstudaginn 5. ágúst:

„Stjórn Strætó bs. áréttar þá skoðun sína að samræmt leiðakerfi fyrir allt höfuðborgarsvæðið sé þýðingarmikið framfaraskref, sem geri almenningssamgöngur raunhæfan kost fyrir mun fleiri en áður. Hins vegar hefur nokkur gagnrýni komið fram á einstaka þætti þess en margir hafa einnig lýst yfir ánægju sinni með breytingarnar. Stjórnin leggur áherslu á að markvisst verði unnið úr öllum athugasemdum hið fyrsta til hagsbóta fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins. 

 

Stjórnin harmar að grípa hafi þurft til tímabundinnar þjónustuskerðingar á akstri stofnleiða en full þjónusta mun verða komin á að nýju um leið og skólar hefjast, mánudaginn 22. ágúst nk.

 

Stjórnin hvetur alla starfsmenn til að halda ótrauðir áfram þrátt fyrir mikið álag við innleiðingu nýja leiðakerfisins.“

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica