klukkan er 08:11


Fréttir

Aukin tíðni á álagstímum felld niður í þessari viku

- leiðabók gildir nema á álagstímum

31.7.2005

Breyting verður á þjónustu Strætó á stofnleiðum í þessari viku. Á álagstímum á virkum dögum, að undanskildum mánudegi, mun verða ekið á 20 mínútna fresti í stað 10 mínútna og á laugardag verður ekið með 30 mínútna fresti í stað 20 mínútna. Leiðabókin gildir að öllu leyti nema hvað álagstíma stofnleiða varðar.

Alla virka daga í þessari viku, nema mánudag, 2.-5. ágúst, verður sú breyting að vagnar á stofnleiðum munu aka á 20 mínútna fresti en ekki 10 mínútna eins og leiðakerfið gerir ráð fyrir á álagstímum, þ.e. kl. 7-8:30 og kl. 15:30-18. Þá munu vagnar á stofnleiðum aka á 30 mínútna fresti allan laugardaginn, 6. ágúst, en ekki á 20 mínútna fresti á milli kl. 11 og 17 eins og leiðabókin segir til um.

Um leið og beðist er velvirðingar á þessum óviðráðanlegu en tímabundnu breytingum er rétt að taka fram að þær eiga sér tvær meginskýringar. Í fyrsta lagi er um að ræða skort á mannskap, sem skýrist af sumarfríum vagnstjóra og því að ekki tókst að ráða nógu marga til sumarafleysinga. Í öðru lagi hefur stöðugildum vagnstjóra fjölgað við tilkomu hins nýja leiðakerfis vegna bættrar þjónustu við almenning.

Til að auðvelda farþegum að nota strætó er þeim boðið að hringja í þjónustunúmer Strætó bs. í síma 800 1199.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica