Strætó: Aukin tíðni á álagstímum felld niður næstu þrjá daga
- leiðabók gildir nema á álagstímum
Breyting verður á þjónustu Strætó á stofnleiðum næstu þrjá daga. Á álagstímum á fimmtudag og föstudag mun verða ekið á 20 mínútna fresti í stað 10 mínútna og á laugardag verður ekið með 30 mínútna fresti í stað 20 mínútna. Leiðabókin gildir að öllu leyti nema hvað álagstíma stofnleiða varðar.
Fimmtudaginn 28. júlí og föstudaginn 29. júlí verður sú breyting að vagnar á stofnleiðum munu aka á 20 mínútna fresti en ekki 10 mínútna eins og leiðakerfið gerir ráð fyrir á álagstímum, þ.e. kl. 7-8:30 og kl. 15:30-18. Þá munu vagnar á stofnleiðum aka á 30 mínútna fresti allan laugardaginn, 30. júlí, en ekki á 20 mínútna fresti á milli kl. 11 og 17 eins og leiðabókin segir til um.
Þessar óviðráðanlegu en tímabundnu breytingar eiga sér tvær meginskýringar. Í fyrsta lagi er um að ræða skort á mannskap, sem skýrist af sumarfríum vagnstjóra og því að ekki tókst að ráða nógu marga til sumarafleysinga. Í öðru lagi hefur stöðugildum vagnstjóra fjölgað við tilkomu hins nýja leiðakerfis vegna bættrar þjónustu við almenning.
Um leið og beðist er velvirðingar á þessum breytingum er rétt að vekja athygli á að þær verða þegar álag á leiðakerfið er í lágmarki, rétt fyrir og um verslunarmannahelgina.
Til að auðvelda farþegum að nota strætó er þeim boðið að hringja í þjónustunúmer Strætó bs. í síma 800 1199.
