klukkan er 09:25


Fréttir

Nýja leiðakerfið fer vel af stað

26.7.2005

Hið nýja leiðakerfi Strætó hefur gengið vel í dag eins og vonir manna stóðu til. Að sögn Ásgeirs Eiríkssonar, framkvæmdastjóra Strætó bs., fékkst mikilvæg reynsla á mánudeginum, fyrsta virka deginum sem kerfið var í notkun. Vaktaskipti hafi t.a.m. gengið mun betur í  dag og akstur verið á áætlun.

Að sögn Sigurbjörns Halldórssonar í stjórnstöð Strætó í Mjódd hefur fólk hringt mikið til að afla sér upplýsinga. Til að auðvelda farþegum að nota strætó er þeim boðið að hringja í  þjónustunúmer Strætó bs. í síma 800 1199. Einnig eru upplýsingar um nýja leiðakerfið á www.strætó.is og www.bus.is.

 

 

 

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica