hvert viltu komast...
klukkan er 14:17


Fréttir

Nýtt leiðakerfi Strætó gengið vel í dag

25.7.2005

Engir stórir hnökrar hafa komið upp á nýja leiðakerfinu, að sögn Sigurbjörns Halldórssonar í stjórnstöð Strætó, og allt gengið vel. Helst sé að fólk kunni ekki nógu vel á hið nýja kerfi ennþá. Eitthvað hafi verið um að fólk viti ekki hvar nýjar biðstöðvar séu en ekki hafi tekist að merkja þær allar ennþá vegna manneklu. Til að auðvelda farþegum að nota strætó er hægt að hringja í frítt þjónustunúmer Strætó bs. í síma 800 1199.

Að sögn Ásgeirs Eiríkssonar, framkvæmdastjóra Strætó bs., hefur vagnstjórum almennt gengið vel að læra á hið nýja kerfi en þeir þurfi að sjálfsögðu tíma til þess að venjast því. Þá verði aðstaða á endastöðvum komin í endanlegt horf á allra næstu dögum.

Mikill fjöldi hefur heimsótt vef Strætó, strætó.is og bus.is, segir Pétur Fenger, aðstoðarframkvæmdastjóri fyrirtækisins, og sé þetta mjög mikil aukning. Samkvæmt talningu Modernus voru heimsóknir þangað um helgina tæplega fjögur þúsund og um 8.300 alla síðustu viku. Síðuflettingar voru 138.000, þar af um 50.000 um helgina, og fjöldi innlita var 13.576, rúmlega 5.000 á laugardag og sunnudag.

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica